13.2.2008 05:14:37 / fcsindri

Sindrafregnir

Sindramenn eru með þeim heitustu í bransanum í dag. Paparazzi-ar elska þá. Almúginn dáir þá. Þú dýrkar þá. Þess vegna er slúðrað um þá. Eða...köllum þetta bara fregnir!

11. júlí

  • Nýr leikmaður kominn til liðsins. Haraldur Árni Hróðmarsson heitir kauði og er góðvinur Bjössa, Atla A, Jóns og Einars Smára. Hann stimplar sig sem miðjumann. Gæti þreytt frumraun sína á föstudaginn gegn Hetti.
  • Allir heilir fyrir leikinn á frjádag. Skorum á alla að mæta.

12.júní

  • Bandaríkjamaðurinn, Nick, spilar líklega í byrjunarliði á móti Leikni Fásk á miðvikudaginn í bikarnum. Leikurinn fer fram á Fáskrúðsfirði og hefst kl 20.
  • Einar Smári og Denis komast ekki í leikinn sökum inntökuprófa í sjúkraþjálfarann og lækninn í HÍ.
  • Kiddi er fluttur til Danmerkur fram í miðjan ágúst.
  • Júlli kallinn meiddist í leiknum gegn Völsungi í nára. Svekkjandi langavitleysa.
  • Afturelding hefur beðið um að láta færa leikinn við þá sem átti að vera 23. júní á heimavelli þeirra til miðvikudagsins 20. júní á okkar heimavöll. Boðinu hefur ekki verið svarað enn.
  • Ef því verður tekið myndi það þýða fjóra leiki á 11 dögum fyrir Sindramenn.

4. júní

  • Leikur gegn Völsungi á Húsavík næsta laugardag kl 16. Förum líklega á laugardaginn og heim aftur um kvöldið.
  • Bandaríkjamaður mætti á æfingu í kvöld. Kauði heitir Nick Vagner og kemur frá Ohio. Hann var hjá KFS en var ekki ánægður með dvölina þar og óskaði eftir því að fá að mæta á æfingu og gerði það eins og áður sagði.
  • Einar Smári verður hugsanlega ekki með á móti Völsungi. Hjalti er enn meiddur og einnig er óvíst með meiðsli Júlla.
  • Dregið var í VISA-bikarnum í dag. Við mætum Leikni Fásk á útivelli miðvikudaginn 13. júní. Þetta er í rauninni 24-liða úrslit. Eftir þau eru 12 lið eftir og þau keppa (aftur svæðaskipt). Ef við vinnum fáum við sigurvegarann úr Höttur-Fjarðabyggð. Þá eru 6 lið eftir og þá koma Landsbankadeildarliðin inn í svokölluð 16-liða úrslit. Afskaplega erfið leið að mæta einhverju stóru liði. Fáránlegt fyrirkomulag.

17.maí

  • Leikur gegn ÍR næsta sunnudag kl 16 í Breiðholtinu. Velunnarar eru hvattir til að mæta.
  • Leggjum í 'ann ýmist á föstudagskvöld, laugardag eða sunnudag.
  • H.Steinar kemur aftur úr banni en meiri efasemdir eru um þátttöku Hjalta þar sem spúsan hans á víst von á sér á næstu dögum.
  • SindraCup, keppni í sigrum á æfingum, fer fjörlega af stað. Aldrei hefur vinskapur manna verið minni á æfingum og segja sögurnar að Sturtuklúbburinn hafi verið hætt kominn vegna tapsærni ritstjóra Sindrafregna. Einnig hefur borið á því að menn séu að spara sig í þrekæfingum hverrar æfingar fyrir leikinn í lokin. Ein tegund manna virðist stunda slíkt en sú tegund kallast "hreinræktaðir svindlarar" en ætt þeirra þykir með eindæmum leiðinleg og útsmogin.
  • Stefnt er á að taka upp efni á ferðum okkar vítt og breitt um landið í sumar. Það ætti að vera gaman enda alltaf stutt í sprellið. Eða eins og maðurinn sagði: ,,Það er í góðu lagi að vera með fíflaskap svo lengi sem það fer ekki út í sprell".

9.maí

  • Gunnar Ingi þykir hafa mikið hugmyndaflug. Nú er komin ný keppni á laggirnar. Keppt verður í sigrum á æfingum. Ekki útskýrði kauði nánar hvað teldist "sigur" en eins og ritstjóri Sindrafregna benti honum á finnst mörgum leikmanninum innan hópsins mikill "sigur" að skora eins og eitt mark í skotæfingu. Vegleg verðlaun verða veitt að sögn Gunnars án nánari útskýringa.
  • Fyrsti leikur í deildinni á sunnudaginn kl 1600 inn í Nesjum á móti Selfossi. Gárungarnir hafa víst spáð 1-0 heimasigri.

7.maí

  • Sevallinn mætti á æfingu í gær. Hann kemur held ég bara til greina í eina stöðu og hann veit það sjálfur.
  • Fáum nýja búninga fyrir fyrsta leik. Má segja að breytinga frá síðasta sumri sé að vænta.
  • Hugsanlegur liðsstyrkur á leiðinni úr Þrótti R. Kemur í ljós á næstu dögum. Þá hefur það heyrst að Júlli skipti hugsanlega yfir en hann verður að vinna í lögreglunni í Reykjavík í sumar. Eitilharður andskoti !!

26.apríl

  • Sindrafregnir þykja skara fram úr þegar kemur að hornfirskum slúðursíðum. Samkeppnin er gífurlega hörð enda hágæða síður þar á ferð. NOOOOOOT ;-)
  • Erum víst byrjaðir að sprikla á grasi. Bletturinn á bak við Mánagarð er notaður í það. Völlurinn sá þykir æði misjafn en skv rannsóknum jarðfræðinga orsakast það af því að skriðjökull lá um Nesjahverfið fyrir langalöngu. Einnig þykja íbúar Nesjahverfis æði misjafnir en það er nú ekkert nýtt.
  • Baddi virðist ekkert kunna á tölvur, sbr. aðalvalmyndina hér til vinstri undir liðnum Jáá.

20.apríl

  • Síðasti leikur Lengjubikarsins í ár verður á laugardaginn gegn Reyni frá Sandgerði sem spilar í fyrstu deild. Spilað verður á Selfossi og hefjast leikar kl 1600.
  • Einar Smári og Atli eru meiddir og Sævar Gunnarsson og Hjalti bæjó koma ekki með. Þá er H.Steinar tæpur á hásin sem fyrr. Aðrir eru heilir líkamlega þótt efast sé um andlegu hliðina.
  • Heyrst hefur að hluti Pókerklúbbsins Flosa sé að reyna að fá félaga sinn úr Reykvík (eins og hún heitir eftir brunann í miðbænum) til liðsins í sumar. Nafn hins látna verður ekki gefið upp að svo stöddu.
  • Nýmæli hefur enn á ný verið skapað í herbúðum Sindramanna. Orðasambandið ,,að biðja ótt og títt um vítaspyrnur" kallast nú Njarðvíkurbænir. Útskýringar er að finna í seinni leik liðanna í fyrra þar sem Suðurnesjamenn báðu um vítaspyrnu ca sjöhundruð sinnum í fyrri hálfleik og annað eins í þeim seinni.
  • Guð blessi ykkur og jebem ti mater.

17.apríl

  • Létt æfing á grasinu áðan eftir útreið helgarinnar þar sem Sævar Gunnarsson lét meðal annars sjá sig.
  • Seval var svo mættur á skokkið á vellinum við hliðina á. Sá gamli virðist vera kominn með fiðring í tærnar.
  • Sturtuklúbburinn heldur sínu striki og í dag var Denis ráðinn sem stundakennari klúbbsins í bosnísku. Laun hans eru engin nema þá sá heiður sem fæst af því að vera viðstaddur fundina. Dobra dan, Denis! Picka ti materina! ...þið sjáið það að árangurinn er ekki lengi að láta sjá sig.

12.apríl

  • Tveir leikir um helgina. Sá fyrri er æfingaleikur gegn Hvíta Riddaranum kl 16 á Varmárvelli. Seinni leikurinn er í Lengjubikarnum gegn Aftureldingu á sama velli kl 14.
  • Sævar Gunnarsson er sagður ætla að dusta rykið af takkaskónum í næstu viku.
  • Hugsanlega kannski munu einn eða tveir nýir leikmenn spila æfingaleikinn á móti Hvíta Riddaranum.
  • Atli A-maður er búinn að skipta yfir og verður með okkur í sumar.
  • Sturtuklúbburinn nýtur sívaxandi vinsælda og hefur aukið meðlimafjölda sinn um 50% - úr tveimur í þrjá. Starfsemi klúbbsins felst aðallega í að baða sig upp úr heitu vatni eftir langar og strangar æfingar. Æskilegt er að menn mæti með tvo banana á hvern fund. Það er jú ákaflega mikilvægt að fá flókin kolvetni beint eftir æfingar. Einnig er algjör skylda að mæta með góða skapið.

7.apríl

  • Ekkert varð úr æfingu upp í Lóni sökum geysilegrar ofankomu á suðausturhorni landsins undanfarinn sólarhring. Þess í stað var æft innandyra líkt og tíðkaðist eitt sinn.
  • Gríðarlegur pókerfaraldur herjar á Sindramenn í páskafríinu. Þá erum við að tala um fjögur spil á dag að meðaltali.
  • Leikur í Lengjubikarnum um næstu helgi á móti Aftureldingu á Varmárvelli.

6.apríl

  • Sindramenn ætla að bregða undir sig betri fætinum á morgun og æfa upp í Lóni. Einhver völlur ku vera rétt hjá Reyðará ásamt tveimur mörkum. Ef bætt er við einum bolta eru allar aðstæður komnar til knattspyrnuiðkunar.
  • Afturelding vann Víking Ó. 1-0 í riðlinum okkar í Lengjubikarnum um daginn. Allt tiltækt læknalið á Snæfellsnesi er viðbúið því að Ejub Purisevic fái hjartaáfall á næstu dögum. Einnig þarf jarðfræðing til að koma hjarta Ejubs aftur af stað því eins og margir vita er hann mjög ótilfinninganæmur og með hjarta made of stone.

4.apríl

  • Ritstjóri Sindrafregna ku hafa látið hárið fjúka í dag. Fór hann á Hárgreiðslustofu Einsa Bjarna sem er til húsa á Mánabraut 1. Einsi stóð sig með sóma miðað við að þetta var frumraun hans sem klippari. Undir lokin setti hann þó STRIK í reikninginn eða öllu heldur haus ritstjórans. Ber viðskiptavinurinn þess heldur betur merki að hafa verið klipptur af amatör á þessu sviði!
  • H. Steinar þykir líklegastur að mati lesenda til að verða spjaldakóngur næsta árs. Niðurstöðurnar koma ekki á óvart og eru í takt við íbúakosningu Hafnfirðinga um stækkun álversins í Straumsvík.

30.mars

  • Sú fáránlega staðreynd liggur fyrir á ksi.is að markaskorarana úr leiknum á móti Víkingi Ó. vantar. Því skortir öll sönnunargögn fyrir því að ritstjóri Sindrafregna hafi bjargað hári sínu í leiknum. Líklegt er því að hann verði tekinn af lífi við hátíðlega athöfn í Miðbæ Hafnar í kvöld fyrir mótþróa.
  • Þá hefur heyrst að Björn Pálsson og Sindri Ragnarsson séu mættir í bæinn. Munu þeir án efa keyra upp tempó þeirra æfinga sem framundan eru með hraða sínum og leikni.
  • Þá ku Oggi hafa verið í svokölluðu "gilli" með vinnunni í gær. Ef þið viljið vita hvernig honum líður þá getið þið tékkað á personal message-ið hans á msn!

24.mars

  • 2-1 sigur vannst á fyrstudeildar liði Víkings frá Ólafsvík í Akraneshöllinni. Hjalti bæjó og Björn Páls skoruðu mörkin. Víkingar minnkuðu muninn alveg í blálokin.
  • Búið er að fresta leiknum við Aftureldingu sem átti að vera næsta laugardag vegna æfingarferðar Mosfellinga. Leikurinn í dag gegn Víkingi var því síðasta tækifæri ritstjóra Sindrafregna til að bjarga hárinu sínu frá því að vera tekið af! Hann náði að bjarga sér og þarf ekki að snoða sig frekar en hann vill. Þó eru sumir leikmenn sem telja markið hafa verið sjálfsmark en það er náttúrulega argasta vitleysa. Ef þetta var sjálfsmark þá hefur Frank Lampard ekki skorað eitt mark á ferlinum!
  • Leikur gegn KFR á morgun á Selfossvelli. Stefnir í brjálað veður svo það er eins gott að reima skóna almennilega á. Later drengz...

23.mars

  • Það virðist stefna í að leikur verði háður á Selfossvelli á sunnudaginn. Munu Sindramenn þar mæta liði KFR (sem þýðir að ég held Knattspyrnufélag Rangæinga).

22.mars

  • Æfingu Reykjavíkurdúettsins með Austfirðingunum var frestað í kvöld sökum veðurs. Þetta var þeim tilkynnt eftir að hafa mætt á Árbæjarvöll sem eins og allir vita er staðsettur útí rassgati!
  • Sagan segir að ritstjóri Sindrafregna hafi tekið tíðindunum illa og gengið í skrokk á Njáli Eiðssyni þjálfara Hattar í Fylkisheimilinu. Beitti ritstjórinn þar sínum fræga hælkrók og lá Njállinn kylliflatur. Hreytti hann þá í hann að vindur hefði nú aldrei stöðvað Hornfirðinga og þó það gæfi á bátinn þá þýddi nú ekkert að sleppa fiskeríi! Egilsstaðabúar voru að sjálfsögðu furðulostnir yfir framgöngu ritstjórans og spurðu "fiski hvað?".

21.mars

  • Maggi á fotbolti.net hefur beðið ritstjóra Sindrafregna um að svara hinum geysivinsæla lið "Hvað er að frétta?" á vefsíðunni. Fréttin birtist líklega á mánudaginn. Mun þar öllu fögru vera logið upp á liðið og andstæðingum blótað í sand og ösku.
  • Þá verður frétt um ráðningu Árna sem þjálfara birt í fyrramálið. Nokkrum vikum of seint en betra er seint en aldrei!
  • Eins og ég segi... papparazi-ar elska þá!

20.mars

  • Fregnir herma að tveir nýir leikmenn muni koma til með að reyna fyrir sér með Sindramönnum ef æfingarleikur fæst á sunnudeginum. Annar þeir ku vera frá Bandaríkjunum en hinn frá Leikni Reykjavík.
  • Hugsanlegir andstæðingar í æfingarleiknum eru ÍR eða Hvíti Riddarinn sem eins og kunnugt er dró sig út úr Lengjubikarnum á dögunum.

18.mars

  • Sindramenn halda á ný í Akraneshöllina næstkomandi helgi þar sem andstæðingurinn verður Víkingur frá Ólafsvík. Leikurinn verður á laugardaginn kl 14 og hvetjum við alla sem vettlingi geta valdið að mæta þangað!
  • Einnig á að reyna að redda æfingaleik á sunnudeginum til að nýta ferðina til hins ýtrasta. Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefur verið nefnt í því sambandi en ekkert hefur enn verið staðfest.

15.mars

  • Einn leikur verður í riðlinum okkar í Lengjubikarnum um helgina. Afturelding mætir Kára í Akraneshöllinni á morgun, föstudag, kl 21:00.
  • Vissir þú... að annar línuvörðurinn í ofangreindum leik heitir Uchechukwu Michael Eze? Nei bara svona fróðleiksmoli!

14.mars

  • Fréttamenn Sindrafregna komust á snoðir um það að Seval Zahirovic aka Sverrir hefði mætt á æfingu í gær. Sýndi hann þar lipra takta eins og honum einum er lagið. Þá hefur heyrst sá orðrómur að hann muni spila í miðverðinum í sumar þar sem það hentar honum betur á seinni hluta ferilsins.
  • Vissir þú... að Seval var eitt sinn atvinnumaður í Austurríki, Slóveníu og fleiri löndum? Þá varð hann bikarmeistari í Austurríki með Karnten og skoraði meðal annars úr vítaspyrnu í vítakeppni í úrslitaleiknum. Maðurinn er með stáltaugar!

12.mars

  • Fregnir herma að Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornfirði og félagi í Captain Morgan klúbbnum, ætli að dusta rykið af knattspyrnuskónum fyrir næsta leik í Lengjubikarnum. Andstæðingurinn verður Víkingur frá Ólafsvík en við stjórnvölinn þar er enginn annar en Ejub Purisevic sem stýrði Sindramönnum á sínum tíma.

9.mars

  • Nýjustu fréttir herma að enginn verði leikurinn á móti Aftureldingu. Bera Mosfellingar fyrir sig veikindi og almennan slappleika sem er svo sem ekkert nýtt. Reyna á að redda öðrum leik og hafa tvö lið verið nefnd í því sambandi, Skallagrímur og Hvíti Riddarinn.

8.mars

  • Tveir leikir verða um helgina (öllum öðrum leikjum verður frestað;). Fyrri leikur okkar verður æfingarleikur við Aftureldingu kl 14 á Varmárvelli að því er best vitað. Seinni leikurinn verður svo gegn Kára í Lengjubikarnum. Sá fer fram í Akraneshöllinni sem tekin var í gagnið fyrr í vetur og hefst hann einnig kl 14. Það verður gaman að keppa fyrstu alvöru leiki ársins og sjá hvar liðið stendur.
  • Heyrst hefur að Sindrasveitin ætli sér í póker eftir leik á laugardag. Það skal tekið fram að þetta er algjörlega óstaðfestur orðrómur en yfirleitt eru meiri líkur en minni á því að póker sé ástundaður þegar saman koma Sindramenn fjórir eða fleiri.

6.mars

  • Svo virðist sem Hvíti Riddarinn hafi dregið sig út úr Lengjubikarnum. Því verða aðeins fimm lið í okkar riðli og leikjunum fækkar um einn. Ekki er vitað hvort hræðsla eða almenn kvenmennska hafi valdið því að þeir hættu við þátttöku.

4.mars

  • Júnæted yfirspilaði Liverpúl í gær. Yfirburðirnir voru algerir svo það þurfti ekki að koma á óvart þegar markahrókurinn mikli John O'Shea þandi netmöskva Púllaranna í viðbótartíma og tryggði sínum mönnum Englandsmeistaratitilinn tímabilið 2006/2007. Sá fyrsti af þremur kominn í hús. Þá má geta þess að Oggalingurinn sat fyrir aftan markið þar sem sigurmarkið var skorað. Sat hann þar í góðum félagsskap hörðustu stuðningsmanna Púllaranna. Fékk hann m.a. að heyra í kjölfar marksins; ,,Ohh fuck off you bloody United fan!"
  • Þá hefur Hlaupaklúbburinn Skúmsen stofnað útibú í Liverpool borg. Hátíðleg athöfn var haldin þar í dag þar sem Oggalingurinn var staddur fyrir hönd klúbbsins. Robbie Fowler mun sjá um hlaupin þar í bæ enda veitir honum ekki af því.

2.mars

  • Heyrst hefur að Árni þjálfari, aka Formaðurinn, beiti úthugsuðum blekkingum til að koma Hjalta Vignissyni á æfingar. Á Formaðurinn að hafa sagt Hjalta að það yrði bara fótbolti á einni æfingunni og þá mætti Hjalti að sjálfsögðu. Í ljós kom hins vegar að æfingin var uppfull af sprettum og alls konar þrekæfingum. Er jafnvel talið að brestur sé kominn í samstarf þeirra í bæjarmálunum í kjölfar þessara blekkinga en það er þó ekki staðfest. Líðan Hjalta eftir æfinguna er eftir atvikum.

27.feb

  • Skúmsen meðlimirnir Óskar og Björn munu keppa æfingaleik ásamt þeim leikmönnum Hugins og Hattar sem eru að æfa saman í bænum á móti ÍH á fimmtudagskvöldið. Hefjast leikar kl 21:30 á gervigrasinu á Ásvöllum.
  • Oggi mun svo morguninn eftir þann leik halda á vit ævintýranna í Bítlaborginni. Mun hann þar koma til með að sjá Ronaldo skora sigurmarkið í dramatískum 0-1 sigri United manna. Hann mun víst einnig ætla að hlaupa nakinn yfir völlinn og reyna að koma sér þannig á framfæri sem klámmyndaleikari í Þýskalandi. Gangi þér vel Skúmur og skemmtu þér vel!
  • Þá ku Jón Haukur hugsanlega vera á förum frá liðinu. Grindavík er víst liðið sem hann er að pæla í. Mundu bara Jón...það er alltaf rok í Grindavík!

26.feb

  • Sindri Ragnarsson er nú við æfingakennslu/starfsþjálfun sem íþróttakennari í Hafnarskóla undir dyggri stjórn Sævars Gíslasonar. Drekkur hann þar í sig fróðleik og reynslu enda hefur Sævar marga fjöruna sopið í þessum efnum.
  • Hlaupaklúbburinn Skúmsen hélt tvo fundi um helgina. Formaðurinn lét sig reyndar vanta á laugardeginum og bar fyrir sig álagi í vinnu. Varaformaðurinn er hins vegar orðinn öllum hnútur kunnugur í Kópavogi en þar fara fundirnir fram. Eftir hlaupin á sunnudeginum héldu meðlimir klúbbsins til lyftinga í Sporthúsinu. Þar sýndu þeir Agli Einarssyni, aka Gillzenegger, hvernig pumpa skal tylft reppum af 100kg í hnébeygju án mikilla vandræða. Eftir æfinguna gaf Gillz sig á tal við meðlimina og bað um ráðleggingar um allt milli himins og jarðar er viðkemur líkamsrækt og framkomu. Vonum við að hann hætti að leika þessa bjánatýpu og taki meðlimi Skúmsen klúbbsins sér til fyrirmyndar í framtíðinni.
  • Þá hefur vefurinn sterkar heimildir fyrir því að Árni Þorvaldsson, þjálfari Sindramanna, sé hreinlega að gera út af við leikmenn á æfingum. Ekki þá með leiðindum heldur þykir ákefð æfinganna (eins og það myndi orðast í kennslubók) með hreinum ólíkindum. Hlaup "vegg í vegg" þykja geysivinsæl á þessum æfingum. Eru Skúmsen félagar, sem eru búsettir á Reykjavíkursvæðinu, orðnir smeykir um að vera í verra formi en Hafnarbúarnir í leiknum á móti Kára eftir minna en tvær vikur. Það væri þá breyting frá fyrra ástandi!

24.feb.

Heyrst hefur að Oggi sé búinn að fá pólskan ríkisborgararétt. Það gerði hann ekki aðeins vegna þess að hann vinnur eins og Pólverji heldur til þess komast á leik Liverpool og Manchester þann 3.mars næstkomandi. Oggi er alræmd fótboltabulla og er í ævilöngu banni frá leikvöngum í Englandinu. Með því að fá pólskan ríkisborgararétt ætlar hann að villa á sér heimildir og komast þannig inn á Anfield. Ljóst er að ef svo verður mun sjóða upp úr á milli stuðningsmanna liðanna.

Lítill fugl hvíslaði því að deildarstjóra slúðurdeildar FC Sindra að Björn Pálsson væri á leiðinni í Hött. Eru þeir tilbúnir að bjóða honum gull og grænan Hallormsstaðarskóg ef hann lætur til leiðast. Ljóst er að forsvarsmenn Sindra munu nú keppast við að slá á hendur Hattarmanna enda Hr. Pálsson Sindramaður í húð og hár. "Það er út í hött að ég sé að fara í Hött!" sagði Björn er blaðamaður spurði hann út í málið.

Sindri Ragnarsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari og kraftþjálfari liðsins, er víst um þessar mundir eins og hrægammur við að fá leikmenn til liðsins. Sindri þykir hafa góð sambönd og ætti að geta "chattað" leikmenn til liðsins eins og honum einum er lagið enda feykilegur sjarmör þar á ferð.

Þá ku Einar Smári ætlar að raka sig í dag fyrir árshátíð FAS en eins og alkunna er hefur kauði ekki rakað sig síðan á áramótunum. Sumum hefur þótt hann líkjast frænda sínum Helga Kristni óheyrilega mikið en það er ekkert óeðlilegt þar sem þeir eru báðir "Hvammsar" af verstu sort. Það ætti því að vera möguleiki að sjá alla veganna eina af undirhökum Einars í kvöld og er það eitt þess virði að mæta á árshátíð FAS.

Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 86231
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 531 dögum
Leikur við Árborg
Klukkan
Blogg lekmanna