06.03.2009 14:01:04 / fcsindri

Nýr búningur í sumar

Sælir í sumar verðum við í nýjum aðal búning (Rauðum) og verður hann frá Hummel. Þá þíðir að einginn Jako verður hjá Sindra en það á að endurnýja alla reuða búnina hjá Sindra frá 7 flokk til meistara flokkar bæði karla og kvena svo á næsta ári verður endurnýjað varamanna búninganna (Hvítu). Við munum enþá spila með Landsbankan framan á okkur en ekkert hefur breist þar. Yngriflokkarnir verða allir með Sparisjóð Hafnar framan á sér og þeir verða ekki alveg eins og okkar eða ekki jafn dýrir.



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 18:41:14 / fcsindri

Rekstur knattspyrnudeildar Sindra

Knattspyrnudeild Sindra hefur í gegnum árin staðið fyrir umfangsmiklum rekstri. Deildin fer ekki varhluta af þeim aðstæðum sem nú hafa skapast á fjármálamörkuðum, frekar en aðrar knattspyrnudeildir út um allt land. Ljóst er að deildin verður að endurskipuleggja sinn rekstur til þess að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Ef ekkert breytist mun það reynast erfittt að halda úti meistaraflokkum í þeirri mynd sem þeir hafa verið reknir undanfarin ár. Af þessum sökum hefur knattspyrnudeild Sindra markað þá stefnu að rekstur yngri flokka félagsins séu í forgangi á þessum tímapunkti.

Þjónusta við iðkendur yngri flokkanna mun því ekki skerðast. Einnig hefur verið ákveðið, miðað óbreyttar forsendur, að ekki verði farið út í neinn leikmannakostnað vegna reksturs meistaraflokka félagsins á næsta ári. Hins vegar hefur deildin fullan hug á því að halda öflugu starfi meistaraflokkanna gangandi með öllum tiltækum ráðum. Knattspyrnudeildin hefur nú endursamið við þjálfara meistaraflokkanna, út frá breyttum forsendum - og í samstarfi við aðalstjórn Sindra. Sandra Sigmundsdóttir mun halda áfram að þjálfa meistaraflokk kvenna og Hajrudin Cardaklija verður áfram þjálfari meistaraflokks karla.

Rétt er að benda á það rekstur knattspyrnudeildarinnar hefur verið aðhaldssamur undanfarin ár og hefur deildinni ekki verið steypt í skuldir. Það styrkir starfið til framtíðar þó tímabundinn lausafjárvandi trufli starfið nú um stundir. Engin ástæða er því til að ætla annað en að áfram verði rekin metnaðarfull knattspyrnudeild hjá UMF Sindra á næstu árum þrátt fyrir tímabundin skakkaföll. .

Stjórn knattspyrnudeildar Sindra


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 22:02:53 / fcsindri

Lokahóf Sindra

Jæja þá er skemmtilegri helgi lokið.
Markakóngur og drottning voru Kristinn Guðlaugsson og Jóna Benný.
Efnilegust voru Denis og Árdís Drífa.
Leikmenn sumarsins voru Kristinn Guðlaugsson og Sandra Sigmundsdóttir.
Til hamingju með þetta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 06:09:08 / fcsindri

Uppskeruhátíð mfl. Sindra.

Uppskeruhátíð mfl. Sindra laugardaginn 4 október kl. 20:00.
Húsið opnar kl.19:30 og hefst forréttur stundvíslega kl.20:00.
Í forrétt er a la carte súpa með góðgæti í og í aðalrétt er Horfjarðarlamb ættað úr Suðursveit. Eftirrétur er borinn framm í formi skemmtiatriða. 
Verð kr.2.700. greitt með peningum. (Ekki kort)
Hver og einn kemur með drykkjarföng fyrir sjálfan sig. 

Skrá sig svo í kommentunum hér fyrir neðan.

Dagskrá hjá strákunum hefst föstudaginn 3 okt. kl.18:15 stundvílega á gerfigrasvellinum með littlu móti og eru óvænt verðlaun fyrir fyrsta sæti. Síðan er Póker um kvöldið. (Opið fyrir alla.) Hugmynd að kosta kr.3.000.- inn.

Laugardagur 4 okt. hefst kl.10:30. Farið verður á Austurfjörur og leikið sér á fjórhjólum og farið verður í fjörðinn fyrir þá sem þora og eru þeir dregnir á slöngu á eftir hraðbát. Eftir þetta verður farið í sund og heitan pott til að ná sér í hita eftir kuldann í firðinum.
Ekki er komið verð á þetta en það verðu ekki hærra en kr.5.000 á mann en getur farið niður í kr.2.500. Kemur í ljós síðar.

 

» 25 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 22:37:24 / fcsindri

Huginn - Sindri

Þá er það leikur á móti Huginn en þeir skoruðu þrjú mörk á okkar heimavelli og sýndu að þeir eru til alls lýklegir í riðlinum. Það er erfitt prógram hjá Sindra mönnum á næstunni en það eru þrír útileikir af fjórum.  Huginn, Leiknir úti, heimaleikur við Spyrnir og svo Dalvík/Reynir úti. Sindri kemur sér í góða stöðu ef næst stig eða fleiri úr Hugins leiknum þar sem Huginn eru í öðru sæti riðlinum með 11 stig en Sindri með 15 stig eftir 7 leiki.
Áfram Sindri.

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 22:30:19 / fcsindri

Sindri - Dalvík/Reynir

Góður sigur heimamanna  2 - 1 og voru það þeir Teddi og Steinar sem skoruðu mörkinn í þessum leik.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 13:15:51 / fcsindri

Spyrnir - Sindri

Þá verða Spyrnismenn heimsóttir á fimmtudaginn kl.20:00. Leikurinn verður spilaður á gerfigrasvelli í Fellabæ.
Áfram Sindri

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 08:15:19 / fcsindri

Vísa - bikarinn

Sindri - Spyrnir 6 - 0

Spyrnir kom í heimsókn í annari umferð Vísa - bikarsins. Veðrið var gott en smá hliðarvindur.

Spyrnir var búið að vinna Leiknir F í fyrstu umferð í deildinni 3 - 1 en Sindramenn máttu þola jafntefli við Leikni F  4 - 4 svo það var búist við hörku leik.

Frá fyrsta flauti dómarans var það aðeins eitt lið á vellinum og áttu Spyrnismenn ekkert svar við frískum leikmönnum Sindra og þegar  flautað var til leikhlés var staðan 3 - 0 Sindra mönnum í vil og var Seval búinn að misnota vítaspyrnu sem Kristinn fiskaði eftir að hafa komist einn innfyrir vörn Spyrnismanna.

Snemma leiks í síðarahálfleik fengu Spyrnismenn sitt eina færi sem var 18 metra frá marki sem endaði með skoti rétt yfir mark Sindra. 

Sindri hélt áfram að sækja og þegar flautað var til leiksloka var staðan orðin 6 - 0. Góður sigur hjá Sindra og kemur það í ljós á miðvikudaginn hvaða lið Sindri spilar við í  32 liða úrslitum. Verður það kanski KR?

Mörk Sindra:
Stephen Thurlby 1
Emir Murtic 1
Halldór Steinar Kristjánsson  1
Kristinn Þór Guðlaugsson 3


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 18:15:37 / fcsindri

Áhersluatriði dómaranefndar 2008

Áhersluatriði Dómaranefndar 2008

Knattspyrnusamband Íslands

Áhersluatriði dómaranefndar KSÍ árið 2008

Áhersluatriði dómaranefndar KSÍ 2008 byggja á reynslu fyrri ára á Íslandi, en jafnframt er tekið mið af breytingum á knattspyrnulögunum, fyrirmælum og leiðbeiningum FIFA, UEFA og annarra knattspyrnusambanda á Norðurlöndum. Bætt hefur verið í nokkrum atriðum sem eru til þess fallin að auka virðingu fyrir mikilvægu starfi dómarans ásamt því að minna á að það er hlutverk dómarans að stöðva leik vegna meiðsla leikmanna. Knattspyrna er íþrótt, sem leikin er af ákafa og snerpu, og snerting við mótherja er eðlilegur þáttur í leiknum. Hörð og heiðarleg barátta leikmanna um knöttinn gefur leiknum augljóst gildi, en skylda dómara er ætíð að vernda leikmenn fyrir alvarlega grófum og hættulegum leikbrotum. KSÍ leggur áherslu á heiðarleika og háttvísi í íslenskri knattspyrnu og hvetur alla til að hafa það í huga. Dómarar skulu hvorki líða óheiðarlegan leik né óíþróttamannslega framkomu og skulu gæta þess að leikmenn séu ekki með uppgerð eða leikaraskap til að öðlast ávinning á kostnað mótherja. Mikilvægt er að leikmenn í sviðsljósi efstu deilda fari að leikreglum og séu í hvívetna fyrirmynd ungra leikmanna. Áhersluatriði dómaranefndar taka gildi 10. maí 2008 og leysa af hendi áhersluatriði fyrra árs.

1. Gróf og hættuleg leikbrot
Lögð er áhersla á að stöðva grófan og hættulegan leik. Við að meta hvort um grófan eða hættulegan leik er að ræða skal hafa eftirfarandi í huga (á t.d við þegar leikmaður sparkar eða slær í eða til, bregður, stekkur á, ræðst á eða hrindir mótherja): Er um ásetningsbrot að ræða? Hraði, krafur og ákveðni brotsins; Möguleiki þess sem brýtur af sér á að leika knettinum; Stofnar leikmaðurinn öryggi mótherjans í hættu? Sérstök áhersla er lögð á að útrýma tæklingum þar sem ekkert tillit er tekið til öryggis mótherjans. Dómarar skulu taka strangt á brotum sem eru framkvæmd á miklum hraða og án þess að leikmaðurinn hafi fulla stjórn á aðgerðum sínum og eykur þannig meiðslahættu mótherjans. Fyrir allar hættulegar tæklingar, (athuga stöðu fótar) sem stofna öryggi mótherja í hættu, skal refsað eins og um alvarlega grófan leik sé að ræða með brottvísun af leikvelli.

2. Skallaeinvígi
Fari leikmaður upp í skallaeinvígi, en í reynd stekkur eða ræðst á mótherja í stað þess að leika knettinum, skal honum að minnsta kosti refsað með aukaspyrnu. Huga ber sérstaklega að því hvernig leikmaður beitir handleggjum og olnbogum í slíku návígi.

3. Að halda og toga í mótherja.
 Ef mótherja er haldið eða togað í peysu hans eða buxur með freklegum hætti, skal dómari dæma beina aukaspyrnu (vítaspyrnu) og leikmaðurinn skal áminntur fyrir óíþróttamannslega framkomu.

4. Endurtekin leikbrot
Minnt er á að áminna skal síbrotamenn skv. 12. grein knattspyrnulagannaalla þá leikmenn sem brjóta af sér hvað eftir annað !

5. Barátta í markteig og vítateig
Þegar taka skal hornspyrnu eða aukaspyrnu við vítateig mótherja, fjölgar leikmönnum í teigunum, barátta hefst um svæði (og knöttinn) og líkur á leikbrotum aukast verulega, t.d. að leikmönnum sé haldið. UEFA mælir með að dómari grípi til fyrirbyggjandi aðgerða með því að fresta framkvæmd spyrnunnar og veita leikmönnum tiltal. Það skal gert með mjög sýnilegum hætti, þannig að öllum leikmönnum sé ljóst um hvað sé að ræða. Láti leikmenn ekki segjast, verður dómari að taka fast á málum með áminningu eða brottvísun og aukaspyrnu eða vítaspyrnu, ef leikur er hafinn.

6. Uppgerð og leikaraskapur
Fyrir alla uppgerð, sem er til þess ætluð að villa um fyrir dómaranum, skal viðkomandi leikmaður áminntur fyrir óíþróttamannslega framkomu.

7. Hefnibrot
Þegar um er að ræða hefndarbrot leikmanna, sem oft leiða til áminningar eða brottvísunar, er lögð áhersla á að þeim leikmönnum sem upphafinu valda sé refsað, ekki síst ef um er að ræða gróft leikbrot eða ögrandi framkomu.

8. Að biðja um spjald á andstæðinginn
UEFA leggur áherslu á að það er óíþróttamannsleg framkoma ef leikmaður biður um áminninu á andstæðinginn t.d. með því að veifa ímynduðu spjaldi. Leikmenn sem gjöra slíkt með áberandi hætti ber að áminna.

9. Hópmótmæli
UEFA leggur áherslu á að grípa verður til viðeigandi aðgerða þegar leikmenn hópast að dómara, eða koma hlaupandi um langan veg til þess að mótmæla ákvörðunum hans. Veita ber a.m.k. einum leikmanni áminningu, ekki aðeins þeim sem upphafinu veldur.

10. Skartgripir.
 
FIFA og UEFA krefjast þess að leikmenn taki af sér alla skartgripi áður en leikur hefst, t.d. hringi, eyrnalokka, hálsmen og armbönd. Ekki er talið nægjanlegt að líma yfir skartið.

11. Búnaður leikmanna
Sýna ber leikmönnum skilning, ef þeir þurfa að nota búnað eins og gleraugu, andlitsgrímur, höfuðhlífar eða spelkur. Búnaðurinn skal vera úr mjúku og léttu efni og á engan hátt hættulegur fyrir leikmanninn og aðra leikmenn. Leita ber samþykkis dómara til að nota slíkan búnað. Ef leikmenn nota undirbuxur (hitabuxur) skal þess gætt að litur þeirra sé sem líkastur stuttbuxunum. Sama gildir með undirtreyjur þá skal þess gætt að litur á ermum undirtreyjunnar og á ermum keppnistreyjunnar sé sem líkastur.

12. Stöðvun leiks vegna meiddra leikmanna
Undanfarin ár hefur verið algengt að leikmenn spyrni knettinum út af til að stöðva leik svo hægt sé að huga að meiðslum leikmanna. Oft á tíðum hafa meiðslin verið smávægileg og ekki gefið tilefni til þess að leikur verði stöðvaður. Lögð er áhersla á að leikið sé áfram þar til dómarinn stöðvar leikinn nema augljóst megi vera að um alvarleg meiðsli sé að ræða.
Úr 5. grein knattspyrnulaganna: dómarinn stöðvar leikinn, ef leikmaður er alvarlega meiddur að hans dómi, og sér um að hann sé færður af leikvelli. dómarinn lætur leikinn halda áfram þar til knötturinn er úr leik, ef leikmaður er aðeins lítillega meiddur að hans dómi
Ef dómari hefur nýtt sér vald sitt til að stöðva leik skal leikur hafinn að nýju með því að láta knöttinn falla. Ef leikmenn sparka knettinum út af til þess að hægt sé að huga að meiðslum leikmanna geta þeir ekki gengið að því sem vísu að fá knöttinn aftur þegar leikur hefst að nýju.

13. Meðferð meiddra leikmanna
Þegar leikmenn verða fyrir meiðslum, skal dómarinn ætíð hafa öryggi þeirra í fyrirrúmi. Að fengnu leyfi dómarans er einum lækni eða sjúkraþjálfara viðkomandi liðs heimilt að koma inn á völlinn til þess eins að meta meiðsli leikmanns. Meðhöndlun meiðsla fer ekki fram á leikvelli nema í undantekningartilfellum (sjá neðangreint). Viðkomandi aðili skal einungis sinna meiðslum leikmanns en alls ekki ræða atvik leiksins við dómara, stofna til fundarhalda með leikmönnum eða sinna öðrum erindum. Í því tilfelli ef ekki er sjúkramenntaður aðili á leikskýrslu viðkomandi liðs er einum forráðamanni heimilt að koma inn á völlinn til þess að sinna störfum hans. Ef forráðamenn liða fara ekki að þessum fyrirmælum ber að líta á það sem óíþróttamannslega framkomu og áminna viðkomandi. Í tveimur efstu deildum karla og Bikarkeppni karla (frá 32 liða úrslitum) fær meiddur leikmaður ekki meðferð á leikvelli og skal hann skilyrðislaust fara út fyrir leikvöll til meðferðar. Undantekning skal þó gerð, þegar markvörður á í hlut eða dómari telur að meiðsli séu alvarleg, t.d. höfuðmeiðsli. Dómari kannar hvort leikmaður geti farið sjálfur af leikvelli, en lætur ella bera hann út á sjúkrabörum.
Í öðrum leikjum í meistaraflokki karla og kvenna, leikjum U23 ára liða og í 2. aldursflokki er hins vegar leyfð stutt meðferð á leikvelli, en leikmaður skal að henni lokinni fara út fyrir leikvöll. Dómari skal heimila leikmanni að koma aftur inn á leikvöllinn eins fljótt og unnt er að meðferð lokinni, en þó ekki fyrr en leikur er hafinn að nýju. Leikmenn skulu koma inn að nýju frá hliðarlínu leikvallar. Dómarinn sér um að leikmaður með blæðandi sár fari af leikvelli. Hann má einungis koma aftur inn á eftir að hafa fengið merki frá dómaranum, sem verður að fullvissa sig um að blæðingin sé hætt.

14. Boðvangur og varamannabekkur
Reglugerð KSÍ um knattspyrnumót kveður á um að hvort lið megi tilnefna og skrá áleikskýrslu að hámarki 5 varamenn og 5 forráðamenn. Aðrir hafa ekki heimild til að vera á eða við varamannabekk liðs og skulu dómari og fyrri aðstoðardómari (eða fjórði dómari) gæta þess að það sé virt fyrir upphaf leiks og meðan á leik stendur. Í Landsbankadeild, Bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki (aðalkeppni) og Meistarakeppni KSÍ gildir hins vegar í keppni karla og kvenna að varamenn mega vera 7 að hámarki, svo og 7 forráðamenn. Með aðalkeppni í bikarkeppni er átt við frá og með 32 liða úrslitum karla og 8 liða úrslitum kvenna. Boðvangur getur verið mismunandi frá einum velli til annars hvað varðar stærð eða staðsetningu, en samsvarar annars lengd svæðisins með sætunum að viðbættum einum metra við hvorn enda og nær fram að einum metra frá hliðarlínu. Þjálfarar og forráðamenn mega koma leikrænum leiðbeiningum á framfæri til eigin leikmanna á jákvæðan hátt (en alls ekki til mótherja eða dómara) meðan á leik stendur en aðeins einn í einu og verða þeir að því loknu að hverfa fljótlega aftur á sinn stað. Allir forráðamenn liðsins skulu vera á eða við varamannabekk þess á milli og innan boðvangs. Þjálfarar og aðrir sem eru á varamannabekk skulu ætíð koma fram af kurteisi og á ábyrgan hátt.

15. Virðing fyrir störfum dómara
Mikilvægt er að leikmenn, þjálfarar og aðrir forráðamenn liða sýni dómurum skilning og umburðarlyndi í þeirra mikilvæga starfi. Þeir skulu forðast að kasta rýrð á störf dómara t.d. með hrópum og látbragði. Lögð er áhersla á að dómarar grípi til aðgerða af festu og ákveðni, ef forráðamenn liða haga sér ekki með ábyrgum hætti.

Dómaranefnd KSÍ


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 16:56:33 / fcsindri

KFS - Sindri

Leikur KFS - Sindri hefur verið frestað til laugardagsins 3. maí. Leikurinn við Hvatarmenn fór 2 - 2 eftir að Sindramenn komust yfir 1 - 0 í seinnihálfleik en Hvatarmenn náðu að jafna með sjálfsmarki Sindramanna. Hvöt bæti síðan öðru marki við aðeins 1.mín síðar. Ekki sló þetta Sindramenn út af lafinu og náðu að jafna metin eftir vel útfærða aukaspyrnu þeirra Sevals og Júlla sem Kristinn kláraði. Kiddi skoraði bæði mörk Sindra og er orðinn þriðji markhæstur í B-riðli lengjubikarsins með 4 mörk.  

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 18:18:33 / fcsindri

Nýr leikmaður.

Nú hefur frændi Sevals fengið tímabundið dvalarleyfi og von er á honum í byrjum Maí. Nafnið á honum er EMIR MURTIC og spennandi verður að hitta kauða.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 14:22:46 / fcsindri

Afturelding - Sindri

Laugardaginn 5 apríl kl.14:00 Afturelding - Sindri í Mosfellsbæ.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 13:23:08 / fcsindri

Sindri - Grótta

Sindri - Grótta er laugardaginn 29. mars kl.16:00. Æfing á Fylkisvelli kl.18:30 föstudaginn 28. mars.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 00:18:47 / fcsindri

Árborg - Sindri

Æfingaleikurinn við Árborg er kl.15:00 á Selfossi, nánar tiltekið á gerfigrasvellinum, laugardaginn 15 mars. Mæting er 13.45 og verður farið á bílaleigubifreiðum þar sem að báðar rúturnar eru í notkun þessa helgi. Sjaumst hressir.

Kv. Giv

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 86284
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 534 dögum
Leikur við Árborg
Klukkan
Blogg lekmanna